6. flokkur á strandarmótinu

6. flokkur á strandarmótinu Laugardaginn 12. júlí fóru sextán hressir strákar í 6. flokki ásamt foreldrum á Strandarmótiđ á Árskógsströnd.

Fréttir

6. flokkur á strandarmótinu

Mynd tekin á póllamótinu á Húsavík
Mynd tekin á póllamótinu á Húsavík

Laugardaginn 12. júlí fóru sextán hressir strákar í 6. flokki ásamt foreldrum á Strandarmótið á Árskógsströnd. Keppt var í sól og góðu veðri og aðstæður hinar bestu. Strákarnir fóru án þjálfara síns, Alla Jóa, en hann var sjálfur að keppa á Húsavík og var liðsstjórn því í höndum foreldra sem stóðu sig mjög vel. Völsungur fór með þrjú lið og stóðu þau sig öll með prýði. Völsungur 1 vann einn leik, gerði eitt jafntefli og tapaði þremur leikjum. Völsungur 2 vann einn leik og tapaði fjórum leikjum. Völsungur 3 vann tvo leiki, gerði eitt jafntefli og tapaði einum leik. Þrátt fyrir að hafa tapað leikjum á mótinu var það yfirleitt með litlum mun og í flestum leikjum voru okkar strákar að skora mörk. Allir voru hressir og kátir að leikslokum og fengu grillaða pylsu, ís og gjöf að móti loknu.  Þetta eru flottir strákar sem eiga framtíðina fyrir sér.

fh. 6. flokks

Elín Pálmadóttir


Mynd augnabliksins

Íţróttafélagiđ Völsungur

Vallarhúsi- Auđbrekku 3
640 Húsavík

Styrktarreikningur: 0567-14-400839
Kt: 710269-6379
sími 8953302
volsungur@volsungur.is 

Póstlisti

Skráđu ţig á póstlistann okkar.

Fylgdu okkur á Facebook

Það er alltaf eitthvað líf og fjör á facebook síðunni okkar. Skelltu einu LIKE á hana og málið er dautt.

Gerast Völsungur

captcha