Orkusalan

Fréttir

Undirbúningur Húsavíkurmótsins í handbolta

Undirbúningur fyrir Húsavíkurmótið í handbolta er í fullum gangi. Reiknað er með miklum fjölda keppenda, vonumst við eftir því að foreldrar krakkanna fjölmenni einnig á svæðið. Verið er að undirbúa það að setja upplýsingar um gisti möguleika hér í bænum inná á síðuna, þannig að þeir foreldrar sem ætla sér að koma á mótið viti hvað er í boði í þeim efnum.

Mikið er búið að hringja og spyrjast fyrir um hvar hægt sé að panta sér gistingu í tengslum við mótið og viljum við því sambandi m.a.benda á að hægt er að fara inná skarpur.is og þar inná smáauglýsingar, eins er hægt að hafa samband við Svein Aðalsteinsson sem er starfsmaður okkar hjá völsungi en hann getur veitt frekari upplýsingarum hvar sé hægt að panta sér gistingu, póstfangið hjá honum er volsungur@volsungur.is  

Frekari upplýsingr um þetta og miklu fleira kemur inná síðuna von bráðar.



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning