Orkusalan

Fréttir

Örfá atriđi varđandi Húsavíkurmótiđ í ár.

Mótið verður spilað á tveimur stöðum þetta árið vegna góðrar þátttöku og því að þetta er hluti af  Íslandsmóti. Spilað verður á Húsavík og Laugum í Reykjadal sem er 25 mín akstur frá Húsavík. Á báðum stöðum er góð aðstaða þannig að það á ekki að koma niður á möguleikanum að spila gott mót. Mótshaldarar sjá um akstur á milli Húsavíkur og Lauga. Leikirnir verða 2 x 15 mín. Mikilvægt er að allir leggist á eitt um að halda tímaplan.Við tökum upp það kerfi að vera með armbönd. Keppendur, fararstjórar og þjálfarar verða með armbönd sem veitir þeim aðgang að gistingu, fullu fæði, sundlaugarpartý, sundi, diskó, söfnum, leiksýningu og öðru því sem boðið er uppá á vegum Húsavíkurmótsins. Foreldrum og öðrum aðstandendum gefst svo kostur á að kaupa sér armband á 5000 kr. Fyrir það fær fólk morgun og hádegismat alla dagana, frítt í sund og á söfnin.Mótsstjórn gerir ráð fyrir að flest allir verði komnir til Húsavíkur á miðvikudagskvöld og verði fram á sunnudagsmorgun. Við mælumst til þess við félögin að krökkunum sé gefinn kostur á því að vera fram yfir verðlaunaafhendingu og diskó á laugardagskvöldinu. Svo vakni menn brattir á sunnudagsmorgun og fái sér morgunmat. Gangi svo frá og leggi af stað heim að loknu eftirminnilegu Húsavíkurmóti í handbolta. 

Lokafrestur til að skrá liðin er 13. apríl (annar í páskum.) skráningarblað vinstra megin 

Upplýsingar: Sjá vinstra megin á síðunni.

Verið velkomin til Húsavíkur. 

Mótsstjórn.



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning