Orkusalan

Fréttir

Mótsstjórn Húsavíkurmótsins ţakkar fyrir sig.

Um leið og við þökkum öllum sem lögðu okkur lið á Húsavíkurmótinu með vinnuframlagi, leggja okkur til húsnæði, mat og annað sem til þarf svo hægt sé að taka á móti gestum svo sómi sé að birtum við sýnishorn úr tölvupóstum sem hafa borist okkur eftir mótið. Þetta er bara sýnishorn, póstarnir eru komnir vel á annan tuginn og eru allir á þessum nótum. Hugmyndir mótsstjórnar um að gera helgina eftirminnilega fyrir alla þáttakendur tókst. Kærar þakkir öll fyrir að taka beiðnum okkar um framlag jafn vel og raun ber vitni. Til að rifja upp helgina eru svo myndir inni á síðunni hjá Þuru

Sæl öll. Ég vildi nú bara þakka kærlega fyrir þessa góðu "helgi" á Húsavík

:) Virkilega vel að öllu staðið hjá Völsungsmönnum og þeir Svenni, Valli,

Lúlli og co eiga mikið hrós skilið fyrir frábært Húsavíkurmót. Viðmót allra

starfsmanna mótsins var alltaf svo jákvætt og hreinlega til fyrirmyndar.

Einnig er vert að taka það fram að lokakvöldið var vel heppnað og allir í

mínum hóp a.m.k. mjög sáttir. Stórglæsileg verðlaunaafhending með ljósashowi

og og troðfullri stúku. Rúsínan í pylsuendanum fyrir marga krakkana var

síðan þetta flotta diskótek þar sem mínir drengir fengu t.d. loksins

möguleika á að hitta þessar stelpur sem þeir höfðu verið að eltast við alla

dagana ;)

 

Kærir þakkir frá Haukamönnum.

 

Við erum afar þakklát Völsungum fyrir frábæra skemmtun síðustu daga. 

Ég vona að þetta fyrirkomulag sé komið til að vera. 

 

Fyrir utan handboltann, þá sló leiksýningin Grænir miðar í gegn hjá okkur og eins og

einn þáttakandinn botnaði lokakvöldið:

"Diskóið var fokkin geggjað"



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning