Gngiđ frá samningi viđ Norđlenska
Almennt - föstudagur 6.mar.09 14:26 - Lestrar 1116 - Athugasemdir (6)
Aðstandendur Húsavíkurmótsins í handbolta hafa tryggt sér stuðning Norðlenska fyrir mótið í ár einnig hafa aðstandendur mótsins tryggt sér stuðning MS og Samkaupa við að sjá til þess að matur verði ekki af skornum skammti og gæði í hávegum höfð. En það er eitt af því sem aðstandendur Húsavíkurmótsins telja skyldu sína. Heimamenn sjá um eldamennsku í aðstöðu Norðlenska. Heimamenn er rekið af Bigga og Danna víðfrægum matgæðingum þannig að það verður ekki betra. Matseðill verður trúlega kunnuglegur. Það kæmi ekki á óvar ef þar leindist ekki Húsavíkurjógúrt, Húsavíkurhangikjöt, Heimabrauð frá Heimabakaríi og annað heimilislegt fóður sem tryggir keppendum kraft og ánægju.











