Orkusalan

logo HÚSAVÍKURMÓTIÐ Í HANDBOLTA

Nýjustu fréttir

  • Fosshótel gerist styrktarađili Húsavíkurmótsins.


    Í síðustu viku var gengið frá samningi við Fosshótel á Húsavík um afnot af veitingasal og eldhúsi til að fóðra gesti Húsavíkurmótsins. Þessi samningur er sérlega ánægjulegur fyrir okkur sem stöndum að mótinu vegna þess hvað það einfaldar hlutina fyrir okkur. Fosshótel býður upp á hagstæð tilboð í kring um mótið. sjá heimasíðu 

    Aðra gistimöguleika og ýmislegt fleyra má sjá á þessari síðu


  • Góđan dag tilvonandi gestir Húsavíkurmótsins.

    Þá er undirbúningurinn kominn á fullt. Erum búin að uppfæra grunn upplýsingar og skráningablaðið. Hvoru tveggja verður sent á félögin í gegn um hsí skrifstofuna og menn geta valið um að prenta og senda á faxi eða það sem er miklu þægilegra fyrir okkur fyllt út eyðublaðið í tölvunni og sent á volsungur@volsungur.is  Að því loknu getið þið farið að láta ykkur hlakka virkilega til!!! Sjáumst. Mótsstjórn


  • Mótsstjórn Húsavíkurmótsins ţakkar fyrir sig.

    Um leið og við þökkum öllum sem lögðu okkur lið á Húsavíkurmótinu með vinnuframlagi, leggja okkur til húsnæði, mat og annað sem til þarf svo hægt sé að taka á móti gestum svo sómi sé að birtum við sýnishorn úr tölvupóstum sem hafa borist okkur eftir mótið. Þetta er bara sýnishorn, póstarnir eru komnir vel á annan tuginn og eru allir á þessum nótum. Hugmyndir mótsstjórnar um að gera helgina eftirminnilega fyrir alla þáttakendur tókst. Kærar þakkir öll fyrir að taka beiðnum okkar um framlag jafn vel og raun ber vitni. Til að rifja upp helgina eru svo myndir inni á síðunni hjá Þuru

    Lesa meira

  • Ţakkir til mótsgesta á Húsavíkurmóti.

    "Hvalasafnið á Húsavík þakkar þátttakendum í Húsavíkurmótinu í handbolta árið 2009 kærlega fyrir komuna. Alls komu um 270 gestir á safnið í tengslum við mótið. Það eru forréttindi að taka á móti svona stórum hóp af kurteisum og áhugasömum unglingum og við hlökkum til að taka á móti þátttakendum að ári."                                             fh. Hvalasafnsins á Húsavík, Erla Sigurðardóttir framkvæmdarstjóri.

  • FH og ÍR Íslandsmeistarar 5. flokk yngra ár.

    Íslandsmeistarar 5.fl kk og kvk voru krýndir á Húsavík í kvöld. FH í karlaflokki og ÍR í kvennaflokki. Mótinu lokið með frábærri verðlaunaafhendingu og diskói. Einnig voru krýndir deildarmeistarar í hverri deild og svo að sjálfsögð prúðastaliðið. Það var að þessu sinni Þróttur Reykjavík sem hlaut þann heiður. Sjá úrslit hér. 

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning