Orkusalan

Fréttir

STÓRMÓTI ÍR í frjálsum íţróttum lokiđ

Hópur frjálsíþróttakrakka frá HSÞ, fór um síðustu helgi, á Stórmót ÍR í Laugardalshöll.  Þau stóðu sig öll með prýði eins og þeirra er von og vísa.  Úrslit er hægt að skoða á fri.is/motaforrit.  Það kostar talsverða peninga að fara á svona mót.  Rúta, gisting, matur, keppnisgjöld ofl.  Við höfðum samband við nokkur fyrirtæki og leituðum eftir stuðningi.  Viðtökurnar voru frábærar.  Allir tóku okkur mjög vel.  SAMKAUP/ÚRVAL, VIÐBÓT, HEIMABAKARÍ OG NORÐLENSKA: Kærar þakkir og bestu kveðjur.  Einnig bestu þakkir til þeirra sem bökuðu snúða, muffins ofl.  Það kom sér vel og var mjög vinsælt.

 Frjálsíþróttaráð HSÞ.



Engar umrćđur fundust fyrir ţessa frétt.
Athugasemdir :

:

:


:

:


captcha :


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning