STÓRMÓTI ÍR í frjálsum íţróttum lokiđ
Almennt - ţriđjudagur 20.jan.09 15:42 - Lestrar 1820 - Athugasemdir (0)
Hópur frjálsíþróttakrakka frá HSÞ, fór um síðustu helgi, á Stórmót ÍR í Laugardalshöll. Þau stóðu sig öll með prýði eins og þeirra er von og vísa. Úrslit er hægt að skoða á fri.is/motaforrit. Það kostar talsverða peninga að fara á svona mót. Rúta, gisting, matur, keppnisgjöld ofl. Við höfðum samband við nokkur fyrirtæki og leituðum eftir stuðningi. Viðtökurnar voru frábærar. Allir tóku okkur mjög vel. SAMKAUP/ÚRVAL, VIÐBÓT, HEIMABAKARÍ OG NORÐLENSKA: Kærar þakkir og bestu kveðjur. Einnig bestu þakkir til þeirra sem bökuðu snúða, muffins ofl. Það kom sér vel og var mjög vinsælt.
Frjálsíþróttaráð HSÞ.











