Orkusalan

Stjórnarfundur 13. des 07

Stjórnarfundur hjá Völsungi, haldinn 13. desember 2007 kl. 17:30 í Íþróttahöllinni.

Mættir: Linda Baldursdóttir, formaður, Ingólfur Freysson, Trausti Aðalsteinsson, Brynjúlfur Sigurðsson og Sveinn Aðalsteinsson.

 

1.       Linda setur fundinn. Rætt um að hafa reglulegri fundartíma en allir aðilar eru sammála að of langt er síðan að stjórnin kom síðast saman. Ákveðið að Svenni muni taka að sér að boða á næsta stjórnarfund í byrjun janúar og að stjórnin muni öll koma saman mánaðarlega í vetur. Framkvæmdastjórn, Linda-Ingólfur og Brynjúlfur munu síðan hafa fundartíma vikulega í vetur og verða tímasetningar þeirra funda ákveðnar á næsta fundi.

 

2.       Svenni fer yfir þau verkefni sem hann hefur verið að vinna í. 

 

·         Undirbúningsvinna við jólablað Völsungs hefur gengið vel, bæði efnisöflun og auglýsingaöflun. Ef allir samningar standa þá mun útgáfa blaðsins skila góðum tekjum.

·         Svenni hefur verið að vinna í að fá fyrirtæki til að kaupa auglýsingar á búninga yngri flokkanna. Um er að ræða auglýsingasamninga til þriggja ára og gengur sú vinna vel.

·         Svenni fór nýlega á Raufarhöfn og Þórshöfn með fulltrúum frá HSÞ.  Rædd var  sú hugmynd að Völsungur sendi þjálfara frá Húsavík austur reglulega til fótboltaþjálfunar. Var mjög vel tekið í þessa hugmynd af fólki fyrir austan og er verið að vinna í því að útfæra þetta verkefni.

·         Menntamálaráðuneytið hefur auglýst eftir umsóknum um ferðastyrki til ráðuneytisins vegna þátttöku íþróttafélaga á Íslandsmótum. Ekki liggur alveg ljóst fyrir hvernig þessum styrkveitingum er háttað.  Mun Svenni sjá til þess að deildir innan Völsungs sendi inn umsóknir um styrki

 

3.       Stjórnin þarf að gera ráðningarsamning við Svenna í janúar nk. og útbúa starfslýsingu.

 

4.       Linda kynnti að búið væri að samþykkja hjá æskulýðsnefnd Norðurþings að H.S.Þ. í samvinnu við Norðurþing  myndi sækja um að halda landsmót árið 2015 á Húsavík. Búið er að skipa nefnd um undirbúning að umsókninni og situr Linda í nefndinni. Er mikil vinna fyrir höndum varðandi þessa umsókn. Fyrir höndum er vinna að úttekt á íþróttamannvirkjum á Húsavík og áætlanagerð varðandi þörf á nýjum íþróttamannvirkjum.

 

5.       Linda talaði stuttlega um stöðu fjármálanna, er hún ágæt og réttu megin við núllið.

 

6.       Linda kom fram með þá hugmynd að Völsungur myndi halda uppskeruhátíð einu sinni á ári þar sem allar deildir og allir flokkar myndu taka þátt. Rætt var stuttlega um útfærslu á uppskeruhátíðinni sem og hentuga tímasetningu. Ekkert ákveðið varðandi þetta nema þá að ræða þessa hugmynd betur síðar.

 

Fundi slitið klukkan 18:45.

Brynjúlfur Sigurðsson, fundarritari.

  

 

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning