| 1. gr. | Félagið heitir Íþróttafélagið Völsungur,skammstafað Í.F.Völsungur. Heimil þess og varnarþing er á Húsavík. |
| 2. gr. | Markmið félagsins er að iðka íþróttir,stofna til íþróttamóta og sýninga,glæða áhuga félagsmanna og annarra á íþróttum og vekja fólk til skilnings á gildi íþróttalífs og félagsstarfa. |
| 3. gr. | Merki félagsins er skjöldur með grænum grunnfleti,mynd af knetti og bókstöfum Í. F. V. í hvítum lit. |
| 4. gr. | Félagar geta allir orðið sem náð hafa 7 ára aldri og greiða tilskilin félagsgjöld. |
| 5. gr. | Árgjöld félagsmanna skulu ákveðin í aðalfundi ár hvert. Ævifélagi í Í.F.Völsungi getur hver sá orðið, er greiðir til félagsins í eitt skipti fyrir öll, gjald,sem nemur tíföldu árgjaldi fullorðinna félags-manna á hverjum tíma. Árgjöld og ævifélagagjöld renna í aðalsjóð félagsins. |
| 6. gr. | Iðkendur íþróttagreina mynda deildir innan félagsins og skal hver deild hafa sérstaka stjórn og aðskilinn fjárhag. Stjórnir deilda sjá um daglegan rekstur þeirra. Sérhver deild skal annast sinn eigin fjárhag og ber stjórn hennar ábyrgð á fjárhagslegri afkomu deildar-innar gagnvart aðalstjórn og aðalfundi félagsins. Íþróttadeild skal hafa tekjur af kappleikjum og mótum í viðkomandi íþróttagrein,svo og af annarri fjáröflun,sem hún má efna til í samráði við aðalstjórn félagsins. Deildir lúta sameiginlegri stjórn félagsins,sem fer með æðsta vald í málefnum þess á milli aðalfunda. Ákvörðun um stofnun íþróttadeildar félagsins verður aðeins tekin á aðalfundi félagsins. |
| 7. gr. | Aðalfundur félagsins skal halda eigi síðar en í lok apríl ár hvert. Hann hefur æðsta vald innan félagsins og ákvörðunarrétt í öllum málefnum þess. Aðalfund skal boða rækilega og er hann lögmætur sé til hans boðað með minns einnar viku fyrirvara. Tillögur um laga-breytingar skulu hafa borist aðalstjórn eigi síðar en 14 dögum fyrir aðalfund. |
| 8. gr. | Á dagskrá aðalfundar skal vera: a) Að flytja ársskýrslu félagsstjórnar og deilda. b) Að leggja fram til samþykktar ársreikninga félagsins. c) Að taka ákvörðun um lagabreytingar. d) Að taka ákvörðun um árgjöld. e) Að kjósa stjórn og endurskoðendur reikninga félagsins. f) Að kjósa starfsnefndir,ef þurfa þykir. g) Að taka til umræðu og afgreiðslu önnur mál,sem félagsstjórn eða einstaklingar félagsmenn leggja fyrir fundinn. |
| 9. gr. | Stjórn félagsins getur boðið til almenns félagsfundar,þegar hún telur nauðsynlegt. Skylt skal henni að boða til almenns félagsfundar ef 20 atkvæðisbærir félagsmenn hið fæsta,óska eftir því skriflega. |
| 10. gr. | Á fundum félagsins ræður einfaldur meirihluti greiddra atkvæða úrslitum mála,þó skulu lagabreytingar og ákvörðun um stofnun nýrra deilda því aðeins öðlast gildi, að 2/3 hluti atkvæðisbærra fundarmanna greiða þeim atkvæði sitt. |
| 11. gr. | Allir félagsmenn, 12 ára og eldri,hafa atkvæðisrétt og kjörgengi á aðalfundi félagsins. |
| 12. gr. | Stjórn félagsins skal skipuð fimm fulltrúum; formanni,gjaldkera,ritara og tveimur meðstjórnendum. Stjórnarkjöri skal haga þannig að formaður er fyrst kosinn sérstaklega og síðan aðrir stjórnarmenn félagsins. Stjórn tilnefni varaformann úr sínum röðum. Kjósa skal tvo fulltrúa sem varamenn í stjórn félagsins. Stjórn félgsins skal skipa þriggja manna framkvæmdastjórn sem í sitja formaður,gjaldkeri og ritari. Stjórnina skal kjósa á aðalfundi og nær kjörtímabil hennar til næsta aðalfundar. Á aðalfundi skal einnig kjósa tvo félagslega endurskoðendur og löggiltan endurskoðenda reikninga félagsins. |
| 13. gr. | Formaður boða til fundar og stýrir þeim. Heimilt er honum að skipa sérstakan fundarstjóra á aðlfundum og almennum félags fundum. Hann skal boða til stjórnarfunda svo oft sem hann telur nauðsynlegt eða ef einhver stjórnarmaður óskar þess. Ritari bókar fundargerðir og skal sjá um félagatal félagsins. Gjaldkeri hefur umsjá um fjárhag félagsins, innheimtu gjalda og sér um bókhald félagsins sé í samræmi við góðar bókhaldsreglur. |
| 14. gr. | Stjórnarfundur er lögmætur, ef meirihluti stjórnar situr hann. Einfaldur meirihluti atkvæða ræður úrslitum mála á stjórnarfundum. Falli atkvæði jöfn,ræður atkvæði formanns. Formaður skal jafnan boða varamann til stórnarfunda,ef aðalmaður forfallast. Heimilt er formanni að boða varamenn til stjórnarfunda þótt aðalmenn séu ekki forfallaðir. Sé aðalstjórn fullskipuð á fundi hafa varamenn tillögurétt og málfrelsi,en ekki atkvæðis rétt. |
| 15. gr. | Aðalstjórn skal gæta hagsmuna félagsins útávið og vinna að því að gera félagsstarfið gróskumikið og skemmtilegt. Hún skal samræma starfsemi deildanna og móta stefnu félagsins í öllum aðalatriðum. Jafnan skal hún hafa samráð við stjórnir deildanna um þau mál,er þær varðar sérstaklega. Á aðalfundi skal formaður leggja fram ársskýrslu um starfsemi félagsins og gjaldkeri skila af sér endurskoðuðum ársreikningi þess. Stjórn félagsins ber sameiginlega ábyrgð á fjárreiðum félagsins og skuldbindingum þess. Aðalstjórn getur ein skuldbundið félagið útávið. Þó er félaginu óheimilt að taka lán með ábyrgð einstaklinga. |
| 16. gr. | Aðalstjórn veitir viðurkenningar fyrir íþróttaárangur eða störf í þágu félagsins samkvæmt reglum, er hún setur og aðalfundur samþykkir. |
| 17. gr. | Hver deild innan félagsins skal hafa sérstaka stjórn, sem skipuð er þrem mönnum hið fæsta. Hún skal kosin á aðalfundi deildanna og nær kjörtími hennar til næsta aðalfundar. Hver deild skal halda aðalfund árlega. Reglur um fundarboðun,lögmæti fundar,dagskrá og atkvæðagreiðslur, sem gilda um aðalfund félagsins gilda einnig um aðalfundi deildanna eftir því sem við á. Aðalfund deildanna skal halda fyrir 1. mars ár hvert. Stjórnir deilda skulu þá skila til aðalstjórnar félagsins skýrslu sinni um starfsemi viðkomandi deildar ásamt endurskoðuðum og samþykktum ársreikningum hennar. Aðalstjórn skal taka helstu atriði úr skýrslum deildanna í skýrslu sína á aðalfundi félagsins. Reiknisár félagsins og deildanna er 1.janúar til 31.desember. |
| 18. gr. | Vanræki íþróttadeild að halda aðalfund á lögmætum tíma,skal aðalstjórn félagsins boða til fundarins og sjá um framkvæmd hans. |
| 19. gr. | Komi fram ósk meðal félagsmanna um að stofna nýja íþróttadeild innan félagsins, skal hún send
skriflega til stjórnar félagsins undirrituð af minnst 50 atkvæðisbærum félagsmönnum. Aðalstjórninni er þá skylt að leggja fram tillögu um stofnun deildarinnar á næsta aðalfundi félagsins. Samþykki aðalfundur stofnun deildarinnar með tilskyldum meirihluta atkvæða samkv. 10. gr.,skal aðalstjórn boða til stofnfundarins. Stofnfundur skal fara fram skv. reglum, er gilda um aðalfund deilda. |
| 20. gr. | Aðalstjórn ákveður framlög til deilda úr aðalsjóði félagsins. Hún skal halda fundi með formönnum deildanna svo oft,sem hún telur nauðsynlegt og eigi sjaldnar en þrisvar á ári. Á þessum fundum skulu deildarformenn gera grein fyrir starfsemi deildanna og starfsemi þeirra samræmd. Komi ágreiningur milli deilda sker aðalstjórn úr. |
| 21. gr. | Allir eignir félagsins eru sameign þess, hvort sem þær eru í umsjá aðalstjórnar eða einstakra deilda. Hætti íþróttadeild starfsemi skal aðalstjórn taka í sína vörslu fjármuni og aðrar eigni félagsins,sem verið hafa í umsjá deildarinnar, þar með taldar fundargerðabækur,bréf og önnur gögn. Verðlaunagripir og verðmæt skjöl skulu vera í vörslu aðalstjórnar, þó er félgasstjórn heimilt að afhenda Safnahúsinu á Húsavík til varanlegrar varðveislu fullritaðar fundargerðabækur, bréf og önnur gögn,er kunna að hafa sögu- og safngildi. |
| 22. gr. | Úrsögn úr félaginu skal kynna félagsstjórn skriflega og er hún ekki lögmæt fyrr en stjórnin hefur samþykkt hana. |
| 23. gr. | Lög þessi öðlast þegar gildi og falla jafnframt úr gildi öll eldri lög félagsins. |
| 24. gr. | Lögum þessum verður aðeins breytt á aðalfundi. |
Húsavík, 10. júlí 2000. Aðalfundur Í.F.Völsungs. |
Flýtilyklar
Lög og reglur
Nýtt á vefnum
Mynd augnabliksins
Engin mynd fannst sem mynd augnabliksins
Heimsóknir
Í dag: 243
Samtals: 688935
Samtals: 688935












