Orkusalan

Fréttir

Völsungur 0-1 KF

Leikurinn byrjaði rólega en fyrsta alvöru færið fékk Völsungurinn Ásgeir
Sigurgeirsson á 10. mínútu en hann skallaði yfir úr upplögðu færi. KF náði
betri tökum í leiknum og spiluðu vel sín á milli. Þeir uppskáru eina mark
leiksins á 16. mín en þá áttu þeir gott einnar snertingar spil inní teig
sem endaði með góðu skoti Agnars Þórs í fjærhornið. Á 30. mínútu var Agnar
Þór aftur aðgangsharður við mark Völsunga en þá náði hann að skjóta yfir
Ingólf Örn í marki Völsungs en varnarmenn náðu að bjarga í horn. Hornið
var gott og náði Milos góðum skalla að marki sem var varinn og Sigurbjörn
Hafþórsson átti skot sem var varið. Á 36. mínútu fengu Völsungar
aukaspyrnu rétt fyrir utan teig, Arnþór Hermannsson átti gott skot að
marki en Halldór Guðmundsson í marki KF varði vel. Á lokamínútu
uppbótartíma fékk Agnar Þór upplagt færi en í stað þess að skjóta þá
reyndi hann sendingu en Völsungar komust inní og björguðu í horn.

Völsungar byrjuðu seinni hálfleik af miklum krafti og strax á fyrstu
mínútu átti Sindri Ingólfsson gott skot sem fór naumlega framhjá. Á 51.
mínútu náði Hafþór Mar Aðalgeirsson að renna sér í gegnum vörn KF en ágætt
skot hans var vel varið af Halldóri í markinu. Á 55. mínútu fækkaði í liði
KF en Kristján Vilhjálmsson fékk þá gult spjald fyrir brot en það var
seinna gula spjaldið sem hann fékk í leiknum. Á 60. mínútu átti Arnþór
gott skot að marki KF en Halldór náði að verja í þverslá og út í teig. Á
67. mín átti títtnefndur Arnþór góða sendingu úr aukaspyrnu inná teig en
varnarmenn KF náðu að bjarga í horn á seinustu stundu. Á 69. mínútu komst
Arnór Hallsson upp kantinn og átti góða sendingu fyrir markið en Ingólfur
Örn var vel vakandi í markinu og bjargaði með góðu úthlaupi. Völsungar
fengu svo tvö ágæt færi, fyrst á 73. mínútu en þá átti Arnþór gott skot en
framhjá og á 75. mínútu komst Sindri einn gegn Halldóri í markinu en
skotið var fast og vel yfir. Á 88. mínútu náðu Völsungar að skora en það
mark var réttilega dæmt af vegna rangstöðu. Lokafæri leiksins fékk KF, en
þá náði Gabríel Reynisson skoti framhjá Ingólfi markmanni Völsungs en
Bjarki Þór Jónasson rétt náði að hlaupa eftir boltanum og bjarga á línu.

KF náði því að lenda í 5. sæti Hleðslumótsins, en Völsungar höfnuðu í því 6.

Maður leiksins Halldór I. Guðmundsson (KF)


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning