Orkusalan

Fréttir

Meistaraflokkur karla á ferđalagi

Strákarnir eru staddir í höfuðborginni í æfingaferð þessa helgina. Í gær spiluðu þeir við HK og unnu 2-0 með mörkum frá Elfari Árna úr víti og glæsilegum þrumufleyg Arnþórs Hermanns. Í dag spiluðu þeir svo við Val.

Þeim leik töpuðu strákarnir 2-1 eftir að hafa komist yfir. Markið skoraði Nonni Jóa eftir að Kjartan Sturluson hafði varið glæsilega aukaspyrnu Hrannars. Valsmenn jöfnuðu svo metin í seinnihálfleiknum og skoruðu svo sigurmarkið á síðustu mínútunni. Um helgina eru líka 4 strákar að æfa með undirbúningshópum fyrir U-17 og U-19, þeir Hrannar Björn, Arnþór, Hafþór og Sigvaldi en þeir komu allir við sögu í leiknum gegn HK í gær.



Engar umrćđur fundust fyrir ţessa frétt.
Athugasemdir :

:

:


:

:


captcha :


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning