Nýársmót Völsungs 2012
Almennt - föstudagur 6.jan.12 08:21 - Lestrar 146 - Athugasemdir (11)
Nk. laugardag, 7. janúar verður hið árlega Nýársmót Völsungs í blaki. Mótið hefst kl. 9:00 og áætlað er að síðustu leikir hefjist kl. 18:00. Í ár mæta 27 lið til leiks allt frá Siglufirði til Vopnafjarðar, 10 karlalið og 17 kvennalið. Spilað verður í 3 deildum hjá konunum og 1 deild hjá körlunum.
Kíkið endilega við í Höllinni og fylgist með skemmtilegri keppni þar sem leikgleðin er í fyrirrúmi.
Sjoppa á staðnum með ljúffengum veitingum að hætti blakara :)
Gleðilegt Völsungsár!











