Orkusalan

Fréttir

Jafntefli í ćsispennandi leik Völsungs og Dalvíkur/Reynis

Arnţór Hermannsson
Arnţór Hermannsson
Völsungur og Dalvík/Reynir áttust við í afar spennandi leik í
Hleðslumótinu í dag. Húsvíkingar voru talsvert sterkari aðilinn í fyrri
hálfleik og sköpuðu sér fleiri hættuleg marktækifæri. Strax á 8. mínútu
fær Enok Eiðsson stungusendingu innfyrir vörn Dalvíkur/Reynis og kemur
Völsungi í 1-0 með skoti í fyrstu snertingu. Arnþór Hermannsson hefði
getað tvöfaldað forystuna á 17. mínútu leiksins þegar hann fékk dauðafæri
við markteig Dalvíkinga en Steinþór Már Auðunsson varði vel í markinu.

Hættulegasta færi þeirra bláklæddu í fyrri hálfleiknum kom á 26. mínútu.
Þá slapp Hilmar Daníelsson einn í gegnum vörn Völsungs en markverði
Völsungs, Ingólfi Erni Kristjánssyni, tekst að ná til boltans. Boltinn
hrökk til Bessa Víðissonar, leikmanns Dalvíkur/Reynis, en hann skaut
boltanum yfir markið af stuttu færi, einn gegn einum varnarmanni Völsungs.
Þegar komið var fram í uppbótartíma fyrri hálfleiks fékk Völsungur dæmda
vítaspyrnu þegar varnarmaður Dalvíkur/Reynis gerist brotlegur innan teigs.
Arnþór Hermannsson steig á punktinn og setti boltann örugglega í netið.
Hálfleikstölur voru 2-0 fyrir Völsung.

Eitthvað hefur Þórir Áskelsson, þjálfari Dalvíkur/Reynis, sagt við sína
menn í háfleik – því það var eins og allt annað lið hefði mætt til leiks
þegar Vilhelm Adolfsson, dómari leiksins, flautaði síðari hálfleikinn á.
Dalvík/Reynir hafði mikla yfirburði inná vellinum fyrri hluta síðari
hálfleiks og tókst á 18 mínútna kafla að skora þrjú mörk. Fyrst var það
Hermann Albertsson sem minnkaði muninn í 2-1 á 48. mínútu með skoti af
stuttu færi eftir gott spil upp vinstri kanntinn. Tíu mínútum síðar
jafnaði Bessi Víðisson leikinn með glæsilegum stunguskalla á 58. mínútu
eftir flotta sendingu af hægri vængnum frá Viktori Má Jónassyni. Bessi var
síðan aftur á ferðinni á 66. mínútu þegar hann smurði boltann upp í
fjærhornið framhjá Ingólfi Erni Kristjánssyni í marki Völsungs úr frekar
þröngu færi. Staðan því orðin 3-2 fyrir Dalvík/Reyni.

Á 76. mínútu hefði Hilmar Daníelsson getað svo gott sem gert út um leikinn
fyrir Dalvíkinga. Hann komst þá aleinn og óvaldaður í gegnum vörn Völsungs
en Ingólfur Örn gerði mjög vel með því að verja skot hans. Þegar um fjórar
mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma braut varnarmaður
Dalvíkur/Reynis klaufalega á sóknarmanni Völsungs innan vítateigs og því
önnur vítaspyrna dæmd. Steinþór Már varði vítaspyrnu Arnþórs Hermannssonar
en Hafþór Mar Aðalgeirsson var fyrstur að ná til boltans og jafnaði metin
með skoti í fjærhornið. Dalvíkingar voru óheppnir að skora ekki
sigurmarkið þegar tæpar tvær mínútur voru komnar framyfir venjulegan
leiktíma, en skot þeirra hafnaði í þverslánni. Liðin þurftu því að sættast
á skiptan hlut í þessum æsispennandi knattspyrnuleik, lokatölur 3-3.

Maður leiksins: Bessi Víðisson (Dalvík/Reynir)

Jan Eric Jessen annaðist umfjöllunina


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning