Gulli Arnars fer yfir mótiđ

1. Nú sigruðu strákarnir okkar sterkt lið Pólverja í leiknum um bronsið eins og allir vita. Hvað skipti sköpum í þeim leik? Góður fyrri hálfleikur? Varnar-sóknarleikur? Uppleggið fyrir leikinn? Meiri vilji en hjá Pólverjum? Bara betri?
Við sýndum í fyrri hálfleik hvað við getum verið rosalega góðir. Liðið var að spila rosalega vel, ég held að byrjunin á leiknum hafi komið Pólverjum soltið á óvart og þeir voru lengi að átta sig á því hvernig ætti að brjóta á bak vörnina okkar. Í seinni hálfleik er það markvörðurinn hjá Pólverjum sem dettur í svakalegt stuð og það er í raun hans frammistaða sem gerir það að verkum að þeir komast aftur inn í leikinn. Heilt yfir þá vorum við betri.
2. Hver var besti/mikilvægasti leikmaður Íslands í mótinu?
Arnór Atla sýndi hversu góður hann er og ég tel að hann hafi verið mikilvægastur ásamt Alexander Petterson.
3. Hvað kom mest á óvart á EM? Bæði í mótinu sjálfu (úrslit, framganga einstakra liða, dómgæsla, umgjörð) og hjá Íslandi.
Sú staðreynd að hvorki Þýskaland né Svíþjóð hafi komist uppúr riðlinum kemur virkilega á óvart. Annað sem mér finnst standa uppúr en það er dómgæslan mér finnst hún alls ekki hafa verið mjög góð. Það er verið að reka menn útaf fyrir hið minnsta og að sama skapi er verið að dæma sóknarbrot á ótrúlegustu hluti, alls ekki sú lína sem er verið að dæma eftir t.d í meistaradeildinni. Umgjörðin í Austurríki virðist hafa verið sú glæsilegast og hafa men verið að hrósa henna mikið. Árangur íslands kemur kannski ekki beint á óvart heldur undirstrikar hvað við erum í raun góð í handbolta.
4. Er frammistaða landsliðs heimamanna í Austurríki jafnvel svipað stór sigur fyrir íslendinga (Dagur Sigurðsson) og bronsið? Erum við með bestu þjálfarana líka?
Árangur heimamanna er virkilega góður og má skrifa hann að miklu leyti á mikla og góða vinnu sem Dagur hefur verið að vinna. Við Íslendingar eigum ótrúlega góða þjálfara líka. Það er staðreynd að við eigum nokkra heimsklassa þjálfara í dag. Dagur og Guðmundur eru í fersku minni núna strax eftir EM. Sem dæmi má nefna Alfreð Gíslason sem þjálfar Kiel, svo eru líka fleiri efnilegir eins og Aron Kristjánsson sem þjálfar Hauka og er búinn að vera að gera mjög góða hluti þar. Bjart framundan á þjálfaramarkaðnum líka.
5. Ljóst er að á skjánum fylgdumst við með afbragðs íþróttamönnum sem eru öllum miklar og góðar fyrirmyndir. Einhver heilræði að lokum til ungra og áhugasamra handknattleiksiðkenda sem stefna hátt og langt?
Vilji og dugnaður er það sem þarf að búa yfir, vera tilbúin að æfa mikið aukalega og taka tilsögn. Láta ekkert stoppa sig í því að ná þeim markmiðum sem maður setur sér.
Árangur byrjar alltaf hjá manni sjálfum.












