Gervigrasvöllur á Húsavík ??
Vonandi gengur þetta upp núna. Eftirtektarvert að tillagan er samþykkt samhljóða. Tekið af vef Norðurþings:
11. fundur bæjarstjórnar Norðurþings
haldinn í stjórnsýsluhúsi Norðurþings,
þriðjudaginn 24. janúar 2012 og hófst hann kl. 16:15
11. 201009063 - Gunnlaugur Stefánsson óskar eftir umræðu um uppbyggingu gervigrasvallar á Húsavík.
Fyrir
bæjarstjórn liggur erindi frá Gunnlaugi Stefánssyni þar sem óskað er eftir umræðu um uppbyggingu gervigrasvallar á
Húsavík.
Til máls tóku: Gunnlaugur, Hjálmar Bogi, Þráinn, Jón Helgi, Trausti, Bergur, og Jón Grímsson.
Gunnlaugur leggur eftirfarandi tillögu fram:
Bæjarstjórn Norðurþings felur bæjarráði að vinna fjármögnunaráætlun vegna framkvæmdanna við gervigrasvöll á
Húsavík samkvæmt fyrirliggjandi kostnaðaráætlun og útboðsgögnum sem unnið var af Mannviti ehf. fyrir sveitarfélagið
Norðurþing.
Að fjármögnun tryggðri heimilar bæjarstjórn að verkefnið verði boðið út til framkvæmda.
Tillagan samþykkt samhljóða.











