Orkusalan

Fréttir

EM-spekingar Völsungs fara yfir mótiđ

Palli í stuđi
Palli í stuđi
Pálmar ríður á vaðið og lofar okkur að vita hvað honum fannst. Svo koma þeir koll af kolli og við endum með að fara yfir hve getspakir þeir Gulli, Pálmar og Villi voru.

1. Nú sigruðu strákarnir okkar sterkt lið Pólverja í leiknum um bronsið eins og allir vita. Hvað skipti sköpum í þeim leik? Góður fyrri hálfleikur? Varnar-sóknarleikur? Uppleggið fyrir leikinn? Meiri vilji en hjá Pólverjum? Bara betri?

 

Held að það hafi hjálpað liðinu mjög mikið að vera með sama þjálfara og að einhverjum hluta sömu leikmenn og voru í liðinu sem datt út úr undanúrslitum á Evrópumeistaramótinu í Svíþjóð 2002. Þar voru vonbrigðin að detta út í undanúrslitum gríðarlega og náði liðið ekki að rífa sig upp í leiknum við  Dani um þriðja sætið. Mig minnir að sá leikur hafi t.a.m. aldrei verið spennandi.

 

Núna bjó Guðmundur að reynslunni og náði að jafna sig fljótt á svekkelsinu og gat þar af leiðandi undirbúið liðið fyrir leikinn á móti Pólverjum og rifið það upp úr þeim vonbrigðum sem Frakkaleikurinn var. Það sem skipti sköpum í Pólverjaleiknum var góður sóknar- og varnarleikur í fyrri hálfleik. Í seinni hálfleik vorum við heppnir að láta ekki Szmal klára þetta fyrir Pólverjana, en hann varði frábærlega , enda kosinn besti markmaður mótsins.

 

En ég held að það sem við höfðum fram yfir Pólverjanna það var reynsla þjálfarans af EM 2002 og sá undirbúningur sem liðið fékk. Það sást inni á vellinum því það tók Pólverja 30 mín. að komast í gírinn.

 

2. Hver var besti/mikilvægasti leikmaður Íslands í mótinu?

Ólafur Stefánsson er gríðarlega mikilvægur í þessu liði. En mikilvægast hlekkurinn er þríhyrningurinn sem miðjan í vörninni myndar, þ.e. Ingimundur, Sverre og Björgvin í markinu. Þetta er aðal styrkleiki landsliðsins að mínu mati og þegar þeir þrír ná sinni samvinnu þá er íslenska liðið illstöðvandi.

 

3. Hvað kom mest á óvart á EM? Bæði í mótinu sjálfu (úrslit, framganga einstakra liða, dómgæsla, umgjörð) og hjá Íslandi.

 

Þetta mót virðist hafa verið mjög vel skipulagt og heppnast vel. Ég varð fyrir vonbrigðum með Þjóðverjana. Vissulega misstu þeir mikilvæga pósta fyrir mótið en miðað við hvað það er stutt síðan þeir urðu Heimsmeistarar og þá leikmenn sem þó eru í liðinu þá var árangur þeirra langt undir væntingum. Rússarnir ullu mér líka gríðarlegum vonbrigðum, og þá helst að sjá hvað rússneska landsliðið hefur ekkert þróast síðustu ár, frá því að það var með eitt sterkasta lið í heimi. Eins og einhver fréttamaður orðaði það þá var rússneski björninn orðinn að bangsa.

 

Það kom mér mest á óvart hjá íslenska liðinu að Logi skyldi hafa farið með út. Eins og ég sagði hérna síðast virðist öxlin ekki vera að halda hjá honum og hefði ég því viljað sjá annan mann þarna í hans stað, þrátt fyrir að vitaskuld eru færri betri en Logi þegar hann er heill. Það kom líka á óvart hvað árangurinn varð góður miðað við hvernig mér fannst liðið ekki vera að smella í fyrstu tveimur leikjunum. Hins vegar var það íslenski karakterinn sem sýndi sig enn og aftur. Sama hvað hver segir, þá erum við langflottust.

 

4. Er frammistaða landsliðs heimamanna í Austurríki jafnvel svipað stórsigur fyrir íslendinga (Dagur Sigurðsson) og bronsið? Erum við með bestu þjálfarana líka?

 

Skulum nú ekki gleyma því að Dagur neitað að taka við íslenska liðinu og tók við því austurríska. Þannig að við skulum ekki hrósa honum of mikið! En svona án alls spaugs þá stóð Dagur sig vel með liðið. Austurríki er hins vegar með fínan mannskap, vinstri hornamaðurinn hjá þeim var t.a.m. markahæsti maðurinn í þýsku úrvalsdeildinni fyrir tveimur árum og liðið hefur á að skipa mönnum sem hafa unnið sem atvinnumenn í handbolta í mörg ár. Dagur náði hins vegar að slípa þá saman sem lið og náði góðum árangri. Árangurinn er þó langt því frá að svipa til bronsins okkar, þrátt fyrir að þetta sé áfangasigur fyrir austurrískan handbolta.

 

 

5. Ljóst er að á skjánum fylgdumst við með afbragðs íþróttamönnum sem eru öllum miklar og góðar fyrirmyndir. Einhver heilræði að lokum til ungra og áhugasamra handknattleiksiðkenda sem stefna hátt og langt?

 

Það eru bara gömlu sannindin að æfa vel og hugsa um sig og það sem maður er að gera í lífinu fyrir utan íþróttirnar. Maður hefur í gegnum tíðina séð marga efnilega leikmenn, sem voru t.a.m. með manni í unglingalandsliðum, verða að engu í boltanum. Að sama skapi hefur maður séð stráka sem þóttu ekki merkilegir í yngri flokkum springa út og banka á dyrnar hjá landsliðinu. Það er ótrúlegt hvað skynsemi og dugnaður getur komið mönnum langt og ég held að allir ættu að hafa það á bak við eyrað.

 



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning