Orkusalan

Fréttir

Blakliđ Völsungs

Blaklið Völsungs gerðu góða ferð til Siglufjarðar um síðastliðna helgi en
þar fór fram Siglómótið í blaki.
Karlalið Völsungs hafnaði í 2. Sæti og kvennalið Völsungs í 3. Sæti í 1.
Deild.

Um dagsmót var að ræða og spiluðu konurnar 6 leiki en karlarnir 4.

Keppendur fengu leyfi til að aka gegnum Héðinsfjarðargöngin á
laugardagsmorgninum. Framkvæmdir þar virðast ganga vel auk þess sem þetta
styttir leiðina til Siglufjarðar verulega.



Í vetur hefur blakfólkið tekið þátt í þremur hraðmótum á norðurlandi auk
þess að halda eitt mót sjálf, Nýársmót Völsungs sem fram fór í
janúarbyrjun.

Mikil gróska hefur verið í öldungablakinu í vetur líkt og síðasta ári og
munu eitt karlalið og þrjú kvennalið taka þátt í Öldungamótinu í vor sem
að þessu sinni fer fram í Mosfellsbæ.







Bestu kveðjur



Jóna Matt


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning