Orkusalan

Fréttir

Ályktun um uppbyggingu gervigrasvallar

Hluti fundargesta
Hluti fundargesta

Íþróttafélagið Völsungur stóð fyrir opnum félagsfundi í gærkvöld um uppbyggingu á gervigrasvalli á Húsavík. Fundurinn var fjölmennur en tæplega 60 fundarmenn mættu á fundinum. Frummælendur voru Ingólfur Freysson áhugamaður um uppbyggingu gervigrasvallar og Egill Olgeirsson frá Mannvit sem fór yfir teikningar af vellinum og aðstöðu honum tengdum auk þess að koma aðeins inn á kostnaðinn við verkið. Guðrún Kristinsdóttir formaður Völsungs kynnti svo ályktun sem stjórn félagsins hafði samþykkt fyrr um daginn.

Ályktun um uppbyggingu gervigrasvallar

 

Stjórn Í.F.Völsungs telur afar mikilvægt að byggður verði gervigrasvöllur sem verði tilbúinn til notkunar þegar á næsta ári. Núverandi aðstæður til knattspyrnuiðkunar eru ekki boðlegar þeim mikla fjölda sem stundar íþróttina reglulega á vegum félagsins og á eigin forsendum. Æfingasvæðið er mjög illa farið og verður ekki nothæft næsta sumar. Þá er ljóst að aðalknattspyrnuvöllur bæjarins mun ekki geta tekið á móti auknu álagi, verði aðalvöllurinn eina nothæfa grassvæði á Húsavík til æfinga og keppni á komandi sumri. Afleiðingarnar munu ekki láta á sér standa fyrir iðkendur og starfsemi Völsungs.

 

Að mati stjórnar Völsungs er uppbygging gervigrasvallar því algjört forgangsverkefni í uppbyggingu íþróttamannvirkja á Húsavík. Um þessar mundir stunda um 240 iðkendur knattspyrnu á vegum félagsins. Á hverju ári eru leiknir vel á annað hundrað leikir sem draga til sín þúsundir keppnismanna og fylgdarfólks til Húsavíkur. Verði ekkert að gert í uppbyggingu á gervigrasvelli mun það kalla á kostnaðarsamar framkvæmdir við núverandi æfinga- og keppnisvöll sem skiptir tugum milljóna auk þess að veikja verulega starfsemi Völsungs. Sveitarfélagið þarf því að ákveða sig sem fyrst hvernig það ætlar að bregðast við þessari alvarlegu stöðu.

 

Full ástæða er til að vekja athygli á því að með byggingu gervigrasvallar munu knattspyrnuiðkendur að mestu fara úr íþróttahöllinni. Við það mun fjöldi tíma í höllinni losna og nýtast almenningi til heilsubótar og öðrum deildum félagsins til frekari eflingar. Þá hefur Völsungur alla tíð lagt mikið upp úr öflugu forvarnarstarfi ekki síst meðal barna og unglinga. Ein af megin forsendum þess, að svo verði áfram, er boðleg aðstaða til íþróttaiðkunar í bænum. Liður í því er uppbygging gervigrasvallar á Húsavík.

 

 

                                   Samþykkt á stjórnarfundi Í.F. Völsungs, 22. nóvember 2011

 



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning