Orkusalan

Fréttir

4.fl kk knattspyrnu

Greifamót – Akureyri 5.-7. mars 2010 

Allar upplýsingar um skipulag mótsins og leiki er að finna á vef mótsins, http://www.ka-sport.is/greifamot/4fl/2010/. ATH breitt leikjaplan!!!! Mótið fer fram í Boganum og verður gist í Glerárskóla.

 

Fyrsti leikur B-liðs verður á föstudag kl. 16:00 og fyrsti leikur A-liðs kl. 18:30. Áætlað er að síðasta leik mótsins ljúki kl. 14:00 á sunnudag.

 

Drengir hafa með sér hlý föt (skoða veðurspá), íþróttaföt, dýnu, sæng og allt annað tilheyrandi fyrir helgardvöl á Akureyri. Tæki eru leyfileg, en algjörlega á ábyrgð hvers og eins.

Greiðsla fyrir mótið er kr. 8.000 (mótsgjald, sameiginlegur kostnaður og smá sameiginlegt nammi). Drengir hafi með sér drykki (orkudrykkir bannaðir) og nesti fyrir föstudaginn. Einnig hafa allir með sér eitthvað af heimabökuðu brauði og/eða ávöxtum, í sameiginlegt matarpúkk.

 

Ákveðið var að foreldrar keyrðu. Greiða skal bílstjóra kr. 1.000 fyrir hvora ferð. Skipulagning ferða verður í umsjón Birkis í síma 840-8881. Þeir sem hafa möguleika að keyra eða taka aukafarþega á föstudag og sunnudag, láta hann vita sem fyrst. Mikilvægt er að foreldrar gangi frá því að barn þeirra hafi öruggt far báðar leiðir. 

 

Þjálfari og fararstjórar: Danni 840-8893, Ágúst 866-5701 og Úlfar 856-1173.



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning