Orkusalan

Fréttir

4. og 5. flokkar handbolta í Reykjavík

Vilhjálmur Sigmundsson ţjálfari 4.flokks
Vilhjálmur Sigmundsson ţjálfari 4.flokks
35 handboltaiðkendur 4. og 5. flokks karla lögðu af stað til Reykjavíkur í gær. 4. fl til að spila þrjá leiki á Íslandmóti. Þegar þetta er skrifað er fyrsta leik lokið. Völsungur vann Gróttur 31 - 24 í leik þar sem okkar menn höfðu mikla yfirburði. Að sögn Vilhjálms Sigmundsonar þjálfara 

get hann leift sér miklar tilraunir með uppstillingar á liðinu og fleyri leikmenn settu mark en reynslan hefur verið í undanförnum leikjum. Þegar fréttaritari átti samtal við Villa var hópurinn í Smáralind að sinna verslun og viðskiptum sem er ómissandi þáttur í svona ferðum. Seinna í dag eiga strákarnir leik við Hauka í Hafnarfirði og á morgun spila svo strákarnir við Þrótt áður en þeir leggja af stað heim. Úrslit og stöðu í deild má sjá á heimasíðu hsí.  Sjá slóð

5.flokkur karla er að er í Hafnarfirði þar sem spiluð er þriðja túrnering vetrarins hjá 5.fl eldra ár. Leikirnir fara fram í Kaplakrika og voru strákarnir okkar að hefja leik um hádegisbil. Jóhann Rúnar Pálsson er þjálfari þeirra og að hans sögn er mikill hugur í hópnum.

Það er samdóma álit handboltaþjálfaranna að handboltinn sé á uppleið á Húsavík. Iðkendum fjölgi hægt en örugglega og hóparnir taki miklum framförum



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning