4. flokkur kvenna knattspyrnu.
Þau mistök urðu við vinnslu Jólablaðsins að pistill Helgu Bjarkar og Sindra um 4.fl kvenna rataði ekki á síður blaðsins. Þessi mistök skrifast á reikning ritstjórans og biðst ég hér með afsökunar þá því. Pestillinn birtist svo hér að neðan.
Jólakveðja Sveinn Aðalsteinsson.
15 stúlkur æfðu knattspyrnu undir handsleiðslu Helgu Bjarka og Sindra Ingólfssonar seinasta sumar einnig var Jóhann Kristinn okkur innan handar. Sumarið hófst á útileik á Sauðarkróki og endaði hann 3-3. Því næst var keppt við KA og tapaðist sá leikur 3-2. Eitt stig eftir tvo leiki og stelpurnar ákvaðu því að girða sig í brók og unnu næsta leik 16-0 á móti Fjarðarbyggð. Í kjölfarið unnum við næstu tvo leiki og vorum í séns á að vinna riðilinn og komast í úrslit. En 4-3 tap á móti Tindastóll í eiginlegum úrslitaleik um efsta sætið gerði út um vonir okkar um að vinna riðilinn. Við enduðum svo sumarið á að vinna næstu tvo leiki og enduðum við í þriðja sæti með 16 stig þremur stigum á eftir Tindastól. Stelpunar tóku fínum framförum frá fyrsta leik og var gaman að þjálfa þær í sumar. Eftir tímabilið fengu þær Hulda og Jana svo verðlaun. Hulda fyrir mestu framfarir og Jana besti leikmaður. Flokkurinn hélt svo smá teiti í Túni þar sem farið farið var yfir sumarið og skemmtileg atvik rifjuð upp. Birna kom með pizzu frá Sölku og Lovísa kom með mynd og setti í tækið. Flottur endir á fínu sumri.
Takk fyrir Helga og Sindri.











