Opna Húsavíkurmótiđ í Boccia 2017
Opna Húsavíkurmótiđ í Boccia, sem er fastur liđur í starfi Boccideildar Völsungs međ góđum stuđningi Kiwanisklúbbsins Skjálfanda, var haldiđ í Íţróttahöllinni s.l. laugardag. Kiwanismenn sáu um alla dómgćslu, merkingu valla, og koma ađ undirbúningi mótsins. Mótinu stýrđi stjórn Bocciadeildar Völsungs, Egill Olgeirsson, mótstjóri, Anna María Ţórđardóttir yfirdómari, Kristín Magnúsdóttir og Sigurgeir Höskuldsson sáu um ritun og tölvuskráningu.
Mótiđ tókst í alla stađi vel, góđ ţátttaka ađ venju er sýnir ţađ enn einu sinni ađ bćjarbúar og fyrirtćki eru tilbúin ađ styđja viđ bakiđ á Bocciadeildinni međ ţátttöku, en ţetta er fjáröflun fyrir deildina í formi firmakeppni.
Ţá var í fjórđa sinn einnig keppni í krakkaflokki fatlađra, en krakka-boccia hófst hjá deildinni í upphafi árs 2014. Fengu ţau öll myndarleg verđlaun frá Víkurraf og Vodafone.
Úrslit Opna Húsavíkurmótsins í boccia 2017:
1. sćti, „ Trésmiđjan Rein ehf - Systrabörn“, Jóna Rún Skarphéđinsd. og Hólmgeir
Hreinsson. Verđlaun, hangilćri frá Norđlenska og púđar frá Önnubé handverki.
2. sćti, „ Félagarnir“, Olgeir Heiđar Egilsson og Sigurđur Dagbjartsson.
Verđlaun, kertastjakar frá Garđarshólma og 5.000 kr úttekt í Skóbúđinni
3. sćti, „ Örćfabrćđur“, Ásgrímur Sigurđsson og Kristján Valur Gunnarsson
Verđlaun, heyrnartól frá Víkurraf og pizzuúttekt frá Sölku
4. sćti, „Heldriborgararnir-Ráđleysa“, Sveinbjörn Magnúss. og Guđmundur Magnússon..
Verđlaun, gjafabréf frá Penninn/Eymundsson.
Húsavíkurmeistararnir í Bocci 2017, Trésmiđjan Rein ehf - Systrabörn“, Jóna Rún Skarphéđinsd. og Hólmgeir Hreinsson hlutu ađ launum glćsilegan farandbikar sem gefin var á sínum tíma af Norđlenska ehf og var nú keppt um í fimmta sinn.
Einnig var afhentur “Hvatningabikar ÍF” sem hin öfluga bocciakona Hildur Sigurgeirsdóttir hlaut ađ ţessu sinni. Bikarinn er farandbikar gefinn af Íţróttasambandi Fatlađra og veittur árlega ţeim einstaklingi sem ađ mati stjórnar Bocciadeildar og ţjálfara sýnir bestu ástundun, eljusemi í starfi og góđar framfarir.
Verđlaun öll voru glćsileg, og sýnir hug fyrirtćkja til Bocciadeildarinnar og Kiwanis, og er ţeim ţakkađ fyrir frábćran stuđning.
Mótiđ var afar skemmtilegt og tókst mjög vel, mikil stemming, og spenna. Glćsilegt mót međ yfir 60 keppendur og mikill fjöldi gesta var í iţróttahöllinni ţegar mest var.
Takk fyrir góđan dag og sjáumst hress ađ ári á nćsta „Opna Húsavíkurmóti í Boccia“.
12.03.17/EO
Jóna og Hólmgeir međ verđlaunin
Verđlaunahafar
Hildur Sigurgeirsdóttir međ hvatningarverđlaunin
Rosalega einbeittur keppandi